Sýning á Nýp á Skarðsströnd og í Leifsbúð í Búðardal 2021
Brennt var í Eldofninum á Nýp 3. – 6. júní, Bjarnheiður Jóhannsdóttir var brennslustjóri og tókst brennslan glimrandi vel. Verkin sem úr ofninum komu var efniviðurinn á sýningunni "Vits er þörf þeim er víða ratar" þar sem hver Brennuvargur túlkaði söguna um Guðríði Víðförlu á sinn hátt. Sýningin stóð til 19. júní á Nýp og í framhaldinu í Leifsbúð í Búðardal frá 20. júní til 31. ágúst.
Fréttablaðið, Morgunblaðið og Landinn fjölluðu um Brennuvargana og sýninguna. Sumarlandinn var einnig með fína umfjöllun.

























































































































