Þórdís Sigfúsdóttir

Þórdís stundaði nám við keramíkdeild Listaakademíunnar í Árósum í Danmörku 2010-13 og fékk rannsóknarstöðu við keramikdeildina 2013-14. Hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum bæði hér á landi og í Danmörku. Þórdís átti verk á sýningunni Keramík í Listasafni Árnesinga, sem sett var upp í tilefni 35 ára afmæli Leirlistafélags Íslands árið 2016. Þórdís rekur eigið keramíkverkstæði ásamt litlu galleríi að Dalbrekku 32 í Kópavogi.

Steinunn Aldís Helgadóttir

Steinunn Aldís lauk námi frá keramikdeild KV Stokkhólms háskóla og listnámsbraut Levande verkstad við Åstagårdens Folkhögska í Stokkhólmi, þar sem hún bjó um árabil. Hún hefur sýnt verk sín á Svarta katten í Stokkhólmi, Gullkistunni Laugavatni, Grósku í Garðabæ og Handverk og Hönnun í Reykjavík. Steinunn Aldís flutti til Hveragerðis árið 2015 og rekur nú vinnustofu í Listhúsinu Egilsstaðir í Hveragerði ásamt félögum sínum í Handverk og Hugvit undir Hamri.

Ólöf Sæmundsdóttir

Ólöf sótti ýmis myndlistarnámskeið í glerlist, teiknun, olíumálun og málmhönnun við Iðnskólann í Hafnarfirði samhliða námi á listnámsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti þaðan sem hún lauk stúdentsprófi árið 2007. Hún lauk diplómanámi í mótun frá Myndlistaskóla Reykjavíkur árið 2010 og hefur síðan sótt fleiri myndlistarnámskeið í glervinnslu, keramik og módelteiknun. Hún hefur haldið fjórar einkasýningar á árunum 2004-2008 og tekið þátt í nokkrum samsýningum. Ólöf er einn listamannanna sjö sem reka listarýmið Stígur í Reykjavík og er meðlimur í Leirlistafélagi Íslands.

Katrín V. Karlsdóttir Dyrving

Katrín lauk námi frá Kennaraháskóla Íslands árið 1988 og Listaháskóla Íslands árið 2001, Hún var gestanemandi við Keramik-stúdíóið í Kecskemét í Ungverjalandi árin 1999 og 2025. Eftir útskrift tók hún að sér að setja upp leirvinnustofuna á Sólheimum og starfaði við hana í þrjú ár. Þá var hún var einn eigenda Kaolins Keramik Gallerís í 10 ár og rak samhliða eigin vinnustofu, Kvalka Ceramic Studio.

Í dag er Katrín yfirkennari Keramikdeildar Myndlistaskólans í Reykjavík. Hún hefur tekið þátt í nokkrum samsýningum hér á landi, er félagi í SÍM, Leirlistafélaginu og Brennuvörgum.

Ingibjörg Klemenz

Ingibjörg stundaði nám við Myndlistaskóla Reykjavíkur árin 1993-95 og Myndlistaskóla Kópavogs 1994-95. Hún hóf nám í leirlistadeild Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1996, var gestanemandi við Keramik-stúdíóið í Kecskemét í Ungverjalandi 1999 og lauk BA-gráðu frá Listaháskóla Íslands árið 2000. Ingibjörg hefur tekið þátt í samsýningu á Spáni og fjölmörgum samsýningum hér á landi og átti verk á sýningunni Keramik í Listasafni Árnesinga, sem sett var upp í tilefni 35 ára afmæli Leirlistafélags Íslands árið 2016. Hún er meðlimur í SÍM, og Leirlistafélaginu. Ingibjörg rekur keramikverkstæði í Hveragerði.

Hrönn Waltersdóttir

Hrönn nam við lista-, hönnunar- og handverksbraut Iðnskólans í Hafnarfirði 2009-11, lauk diplóma-námi í leirlist frá Myndlistaskólanum í Reykjavík árið 2013 og BA-gráðu ísamtíða listiðn frá Háskólanum í Cumbria í Bretlandi árið 2014. Ári síðar sótti hún námskeið í master- og gifsmótagerð í Myndlistaskóla Reykjavíkur hjá Jens Pfotenhauer. Stundar nú listkennslunám við Listaháskóla Íslands. Hrönn hefur haldið einkasýningar og tekið þátt í nokkrum samsýningum hér á landi og í Englandi. Hún átti verk á sýningunni Keramik í Listasafni Árnesinga, sem sett var upp í tilefni 35 ára afmæli Leirlistafélags Íslands árið 2016. Hrönn rekur keramikverkstæði í Hveragerði og er meðlimur í Leirlistafélagi Íslands.

Hólmfríður Vídalín Arngrímsdóttir

Hólmfríður nam við keramikdeild Listaakademíunnar í Árósum í Danmörku á árunum 2009-2012. Hún hefur tekið þátt í samsýningum í Danmörku og á Íslandi í Reykjavík, á Akureyri og Dalvík. Hún átti verk á sýningunni Keramik í Listasafni Árnesinga, sem sett var upp í tilefni 35 ára afmæli Leirlistafélags Íslands árið 2016 og er félagi í SÍM og leirlistafélaginu. Hólmfríður rekur keramikverkstæði í Ólafsfirði þar sem hún er búsett og tók einnig um tíma þátt í rekstri gallerísins Kaolin í Reykjavík.

Halldóra Hafsteinsdóttir

Kartöflubóndi í Þykkvabæ

Hafdís Brands

Hafdís lauk námi frá Myndlista og Handíðaskóla Íslands 1990, Robert Gordon University, Aberdeen, Scotland 2003 og Glasgow School of Art 2007. Hún hefur haldið einkasýningar og  tekið þátt í mörgum samsýningum bæði hérlendis og erlendis. Hafdís rekur vinnustofu á Korpúlfsstöðum og er þátttakandi í galleríi Korpúlfsstaða og Art 67 á Laugarvegi í Reykjavík. Hún er meðlimur í Leirlistafélagi Íslands. 

Daði Harðarson

Daði

Arnbjörg Drífa Káradóttir

Arnbjörg Drífa Káradóttir er keramik hönnuður menntuð frá Myndlistaskólanum í Reykjavík. Drífa var í starfsnámi í Kaupmannahöfn hjá Christian Bruun 2016 - 2017, en Christian er einn af virtustu keramikerum Danmerkur og á sér fáa jafnoka við rennibekkinn. Drífa hefur auk þess sótt fjölda nám­skeiða hjá virtum keramik hönnuðum. Drífa á og rekur eigin vinnustofu í Reykjanesbæ, þar sem hún leggur m.a. áherslu á rennslu bæði með postulín og steinleir. Drífa er einnig menntaður kennari og hefur sameinað keramik og kennslu, sem kennari hjá Myndlistaskóla Reykjavíkur og með námskeiðshaldi á vinnustofu sinni. Drífa hefur haldið einka- og samsýningar á Íslandi og í Danmörku.

Auður Gunnur Gunnarsdóttir

Auður