Hugmyndin að þessum félagsskap kviknaði fyrst á vinnusmiðju sem haldin var í september 2017 með Anders Fredholm leirlistamanni og kennara frá Svíþjóð. Byggður var viðarbrennslu rakúofn úr vikursteinum og Rakubrennt í honum. Einnig voru ýmsar aðrar frumstæðar brennslur prófaðar.
Meðan á vinnusmiðjunni stóð var tekin upp heimildarmyndin "Frá mótun til muna" sem lýsir byggingu ofnsins og þeim brennsluaðferðum sem prófaðar voru.
Fyrsta listsýning Brennuvarga - Frá mótun til muna - var opnuð ásamt frumsýningu á heimildarmyndinni þann 17. ágúst 2018 í Listasafni Árnesinga Hveragerði. Inga Jónsdóttir var sýningarstjóri. Að því tilefni gaf Listasafn Árnesinga einnig út vegleg sýningarskrá.
Tilgangur félagsins er að gera tilraunir með brennslu aðferðir í lifandi eldi, standa að sýningum, brennslugjörningum, vinnustofum, kynningum og útgáfu.