Brennuvargar er félag leirlistamanna sem sérhæfa sig í brennslu keramiks með lifandi eldi. Markmið þeirra er að endurvekja og þróa áfram aðferðir fortíðar við að brenna keramik í lifandi eldi og öðlast frekari þekkingu með tilraunum. Niðurstöðunum er komið á framfæri með sýningum og brennslugjörningum. Þessar brennslur eru framkvæmdar utandyra og frumkraftar náttúrunnar, vindur, hitastig, rakastig, jörð,vatn, loft og eldur hafa áhrif á útkomuna. Einnig hefur val á eldsmat mikil áhrif á lokaniðurstöðu. Gas, viðartegundir, kúamykja, hrossatað, þang, kaffikorgur, koparþræðir, stálull, þurrkaður gróður og alls kyns kemísk efni gefa mismunandi liti og munstur og ekki er enn séð fyrir endann á tilraunum með fleiri efni. Útkomunni úr þessum brennslum verður ekki stjórnað og hvert verk er einstakt. Listamaðurinn er þáttakandi í ferlinu en ekki allsráðandi varðandi niðurstöðuna. Ferlið tengir listamanninn við náttúruöflin á meðan hann fylgist með brennslunni og eldinum. Í sólarupprásinni á haustin, í bjartri sumarnóttinni og jafnvel á heiðskíru vetrarkvöldi með norðurljósin dansandi yfir. Það er stórkostlegur viðburður í hvert sinn að opna þessa ofna og sjá hvernig tilviljunarkennd orka alheimsins hefur leikið gripina.